Þjóðskjalasafn Íslands
Hvers leitar þú? Heim


Skjalavarsla
Skjalaskrár
Heimildagrunnar
Sýningar - Fræðsla
Afhending skjala
Þjónusta

Um Þjóðskjalasafn
English Dansk

Efst á baugi
2011.12.12
Skúli Magnússon – þriggja alda minning
Í tilefni af því að 300 ár eru liðin frá fæðingu Skúla Magnússonar landfógeta (1711-1794) verður í dag opnuð sögusýning í Minjasafni Reykjavíkur - Landnámssýningunni. Sýningin er samstarfsverkefni Minjasafns Reykjavíkur og Þjóðskjalasafns Íslands. Á sýningunni eru sýnd skjöl og fornleifar sem tengjast fyrstu áratugum Reykjavíkur, upphafi Innréttinganna og þéttbýlismyndunar. Sjá fréttatilkynningu.

2011.11.14
Norræni skjaladagurinn tókst vel
Norræni skjaladagurinn var sl. laugardag og tókst vel í alla staði. Þjóðskjalasafn og héraðsskjalasöfnin stóðu saman að vefnum skjaladagur.is þar sem finna má margvíslegan fróðleik um þema dagsins sem var „verslun og viðskipti“. Yfir sjötíu manns heimsótti Þjóðskjalasafn, hlýddu á erindi og skoðuðu skjalasýningu. Hér má sjá myndir frá skjaladegi í Þjóðskjalasafni.

2011.11.14
Skjalasafn Eimskips til Þjóðskjalasafns Íslands
Á norræna skjaladeginum, 12. nóvember sl., skrifuðu Eiríkur G. Guðmundsson settur þjóðskjalavörður og Pétur Einarsson forstjóri Straums undir viljayfirlýsingu um að Straumur afhendi Þjóðskjalasafni þann hluta skjalasafns Hf Eimskipafélags Íslands sem Straumur ræður yfir. Skjalasafnið er um 120 hillumetrar og eitthvert merkasta einkaskjalasafn úr íslensku atvinnulífi. Sjá myndir...

2011.11.11
Skjalasafn SÍS til Þjóðskjalasafns Íslands
Í dag handsöluðu Guðsteinn Einarsson stjórnarformaður SÍS og Eiríkur G Guðmundssoni settur þjóðskjalavörður samkomulag um að skjalasafn Sambands íslenskra samvinnufélaga, sem varðveitt er á Húsavík, komi í Þjóðskjalasafn Íslands til varðveislu. Safnið hefur verið skráð í samræmi við leiðbeiningar Þjóðskjalasafns undir handleiðslu Héraðsskjalasafns Þingeyinga á Húsavik. Þetta er stærsta afhending einkaskjalasafns til þessa, nærri 600 hillumetrar af skjölum. Sjá mynd...

Skoða eldri fréttir...
Flýtileiðir
Nýir vefir

Manntalsvefur Þjóðskjalasafns Íslands

Héraðsskjalasafnið á Akureyri